
Á Akureyri var Sjómannadeginum fagnað og Brim hf. hélt í þá venju að bjóða fyrrverandi og núverandi starfsfólki til kaffisamsætis í matsal fiskvinnslunnar að Fiskitanga 4. Haldið hefur verið í þessa hefð lengur en elstu menn muna.
Dúkalagt veisluborð hlaðið veisluföngum
Starfsfólk eldhússins hafði veg og vanda að veislunni svo góður rómur var gerður að. Mjög vel var mætt og nautu menn samverunnar, margir mættu með börn og buru og allir virtust hafa gaman af.

Veislugestir að njóta veitinganna
Ljósmyndir: Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri landvinnslunnar

